41.240 kr.

SKU: ANAMA1401L Flokkur:

Bláfætta mantellan (Mantella expectata) er bráðfallegur eiturörvafroskur frá eynni Madagaskar. Hann er koparlitaður með bláar lappir. Mjög eftirsóttur og dýr vegna litarins. Grefur sig gjarnan niður í mosa og botngróðri. Nærist á skordýrum ss. krybbum, flugum og möðkum. Þurfa að vera í röku búri með mosa og plöntum og aðgengi að hreinu vatni. Þetta eru næturdýr eins og aðrir froskar. Karldýrið verður 2,5 cm langt en kvendýrið aðeins stærra. Syngja hátt og eru eitraðir eins og nafnið gefur til kynna. Það á þó einkum við um veidd dýr en ekki ræktuð eins og þessi.

Tegund: Blue-legged Mantella L
Stærð: 2 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 8 vikur (eftir framboði hverju sinni og háð CITIES leyfi)
CalPhotos: Mantella expectata; Blue-legged Mantella

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg