Marine Formula 250g
Byltingakennt fóður frá New Life Spectrum. Einfaldlega vandaðasta og besta fiskafóðrið í heiminum! Aðeins er notast við hágæðahráefni á borð við krill-átu og síld, frekar en hefðbundið fiskimjöl eins og flestir aðrir framleiðendur, til að tryggja hámarksnæringu og hreysti. Hvort sem um er að ræða samfélagsbúr eða sérhæft siklíðubúr uppfyllir New Life Spectrum þarfir allra fiska - kjötæta, grænmetisæta og alæta. Fjórir náttúrulegir litaukar í fóðrinu, m.a. spirúlína þörungur, tryggja að fiskurinn skarti fegurstu liti og viðbættar fiskiolíur og hvítlaukur tryggja bestu heilsu og sjúkdómsviðnám. Engin hormón eru notuð í fóðrinu. Reyndu og þú sérð mun innan tíu daga!!
Marine Formula er alhliðafóður fyrir alla miðlungsstóra sjávarbúrsfiska ss. damsella, haukfiska, trúða, engla. Þótt margir þessara fiska séu grænmetis- og þörungaætur þá éta þeir einnig mikið af vatnalífverum til að fá nauðsynleg prótein. Búrlíf tryggir yfirleitt ekki nægt framboð af þörungum til að mæta þessari þörf en samsetning New Life Spectrum Marine Formula gerir það hins vegar og svo um munar!
Stærð og lögun: 1 mm hægsökkvandi kögglar.
Magn: 250 g.
Innihald: Íshafsrækja (krill), síld, smokkfiskur, hveiti, þörungamjöl, soya, betakarótín, spirulína, hvítlaukur, grænmetis- og ávaxtaolíur (spínat, rauðkál, grænkál, ertur, brokkolí, rauður pipar, zucchini, tómatar, kíví, aprikósur, perur, mangó, epli, papaya, ferskjur), A-vítamín, D3-vítamín, B12-vítamín, ribóflavín, níacín, fólínsýra, kalsíum pantóþenat, pýrídoxín hýdróklóríð, þíamín, bíótín, E-vítamín, C-vítamín, kólín klóríð, kóbalt súlfat, koparsúlfat, járnsúlfat, mangansúlfat.
Samsetning (1 kg): Hráprótín 37%, hráfita 6%, hrátrefjar 4%, aska 8%, raki 10%, A-vítamín 8000 IU, D-vítamín 2500 IU, E-vítamín 200 IU.
Aðrar upplýsingar
Þyngd | 0.00 kg |
---|