Vibrant Sea™ 23kg – 883L

31.900 kr.

Ekki til á lager

SKU: 0328 Flokkur:

Vibrant Sea™ er efnafræðilega traust saltblanda, sérhönnuð til að líkjast hinu náttúrulega umhverfi sjávarfiska. Saltið er alveg vatnslaust (anhydrous) og því hægt er að búa til meiri sjó úr minna salti. Efnið er þróað til að viðhalda sem bestri mettun á magnesíum, kalsíum og strontíum í saltvatni og réttu sýrustigi (basastigi) fyrir hefðbundið búraumhverfi. Vibrant Sea™ inniheldur öll nauðsynleg snefilefni og meiri og minni efni sem eru í náttúrulegum sjó. Ekki er um merkjanlegt magn eitraðra eða ónauðsynlegra efna eins og nítríts, fosfats, silíkata, arseniks eða kadmíum að ræða í Vibrant Sea™. Líffræðilegir efnisþættir eins og vítamín og amínósýrur eru óstöðugir í ómettuðu salti þar sem magn þeirra minnkar hraðar en svo að því verði haldið við með venjubundnum vatnaskiptingum. Þess vegna er mælt með Reef Plus til að tryggja rétt magn þessara efna.
Vibrant Sea™ blandan er einstaklega tær og auðleysanleg. Má nota samdægurs. Gefur við 1,026 seltu eftirfarandi gildi:
pH = 8,4-8,5;
KH = 3-4 meq/L;
Ca = 425-445 mg/L;
Mg  = 1.250-1.350 mg/L;
K = 500-55 mg/L;
Sr = 8-10 mg/L.

23kg af salti duga í 833L (220 gallon) af vatni. ATH: Saltið er eingöngu ætlað fiskabúrum, látið börn ekki koma nálægt efninu.

Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 6 vikur.

Samanburður á sjávarsalti
Sjávarsnefilefnalisti!

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg