Maxima Clam T/B – Coloured L

22.710 kr.

SKU: 11801L Flokkur:

Samlokuskeljar af tegundinni Tridacna maxima eru gríðarfalleg viðbót í rólegu kórallabúri. Þessi kallast Small Giant Clam og finnst víða í Indlandshafi og Kyrrahafi. Hún þekkist á sléttri, ílangri skelinni. Möttullinn er nokkuð breiður og getur verið gylltur, blár og grænn og oft með skellu- eða doppumynstri, yfirleitt með sterkum bláum eða grænum lit.  Þetta er ein algengasta og minnsta Tridacna samlokan. Hún þarf sterka flúr- eða málmhalógen lýsingu. Hún getur 2-3 faldast að stærð á ári við réttar aðstæður og verður mest um 20 cm og getur lifað 50-100 ár. Hún þarf 400-480 mg/L í kalkmagni, pH 8,1-8,3 og alkalinity 7-9. Hún stundar ljóstillífun (ljóstillífandi þörungar) og síar æti úr vatni þ.a. það þarf helst að fóðra hana eins og harða kóralla. Þessar eru með grænu, gulu og brúnu í möttlinum.
Stærð: large (stór) = 7-8 cm. Ræktuð.
Skilmálar: CITIES skyld
Afgreiðslutími: 2-4 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg