Vesicularia montagnei ‘Christmas’ – on Wood
Vesicularia montagnei 'Christmas' eða jólamosinn er fallegur lafandi vatnamosi sem á uppruna að rekja til Brasilíu í S-Ameríku. Hann fær nafnið vegna þess að vaxtarlagið minnir á furugreinar. Mosinn stuðlar að miklu smádýralífi í búrum og er tilvalinn í rækjubúr. Vex yfir steina en dafnar best á rótum, og skapar fallega dýpt í búrum þegar hann hangir frá þeim. Gott að snyrta mosann reglulega til að forma hann betur. Hann er kröfuharðari en javamosinn. Þarfnast miðlungsbirtu (0,5W/L). Hæð 1-3 cm. Sýrustig (pH) 5-7. Seld á fenjaviðarrót.
Tegund: Vesicularia montagnei 'Christmas'
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)
Leiðbeiningamyndskeið: Vesicularia ferriei "Weeping"