Microsorum pteropus ‘Windeløv’ – on Wood w/Sucker
Microsorum pteropus 'Windeløv' er fallegt ræktunarafbrigði af javaburknanum frá Asíu og verður 10-20 cm hátt. Stofandi Tropica, Holger Windeløv, á heiðurinn af því. Blaðendarnir eru eins og greinótt tré og einstaklega fallegir. Hentar vel fyrir byrjendur sem og lengra komna, bæði í örbúr og stór. Binda má burknann við rót eða stein með fiskigirni uns hann hefur fest sig. Ef hann er gróðursettur í botnlaginu þarf að gæta þess að mölin hylji ekki jarðstöngulinn annars rotnar hann. Seld á fenjaviðarbút (sjálf fest) með sogskál. Hægt að festa á gler! Nánari upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/microsorum_pteropus_.html
Tegund: Microsorum pteropus 'Windeløv'
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)
Leiðbeiningamyndskeið: Microsorum pteropus 'Windeløv'