Mirra-Coat Liquid Dogs – 236ml – UPPSELT!

3.590 kr.

Ekki til á lager

SKU: 996767 Flokkur:

MIRRA-COAT Liquid er ætlað stutthærðum dýrum og dýrum á aldrinum 8 vikna til 5 ára.
Mirra-Coat eru næringarrík fæðubótarefni fyrir hunda, ketti og önnur smádýr sem þurfa sérstaka meðhöndlun eða aðstoð m.a. við að stöðva kláða eða laga þreyttan feld, flösu, hárlos eða þurrk. Efnið er notað við að byggja upp húð og feld eftir meðferð við sníkjudýrum, áfall, ofnæmi, til að byggja feldinn upp eftir hárlos og fl. Mirra-Coat má líka nota til að gera feldinn fullkominn fyrir mikilvægar sýningar og keppnir, sem gerir það að verkum að minna þarf að nota af snyrtivörum og öðrum efnum. Einnig hjálpar það við að koma í veg fyrir upplitun dökkra hára. Árangur fer fljótt að sjást eða eftir u.þ.b. 2 vikur og hver brúsi/dós dugir sem einn "kúr" fyrir flesta meðalstóra hunda. Það skal tekið fram að Mirra-Coat má gefa í lengri tíma sé þess óskað.

Mirra-Coat inniheldur eftirfarandi mikilvæg næringarefni:
Fitusýrur sem styrkja varnir húðarinnar og ýtir undir framleiðslu frumuhimna
A-Vítamín kemur í veg fyrir stíflaða hársekki
E-vítamín kemur í veg fyrir oxun nauðsynlegra fitusýra, kemur jafnvægi á A vítamín
B6-vítamín kemur í veg fyrir húðþrota og hárlos
Bíotín kemur í veg fyrir flösu og hárlos, eykur glans og skerpir liti.
Zínk vinnur gegn flösu, húðþrota og hárlosi ásamt því að virkja prótín og fitusýrur.
Mirra-Coat inniheldur ekki D-vítamín þar sem það getur verið skaðlegt í of miklu magni.

Efninu er bætt út í fóður samkvæmt leiðbeiningum á brúsanum/dollunni.

Aðrar upplýsingar

Þyngd236.00 kg