Namiba® Terrariumsand Red M – 5kg
Namiba® Terrariumsand Red er kjörið botnlag fyrir alls kyns eyðimerkurdýr. Þessi sterklitaði, rauði sandur skapar náttúrulegt umhverfi fyrir stærri eðlur ss. skeggdreka, skrautdreka og mónítor ráneðlur. Best er að hella sandinum rökum í búrið og leyfa honum að þorna áður en dýrið er sett í það. Með þessu móti harðnar sandurinn og gerir skepnunni kleift að grafa göng og helli í honum. Þess vegna ætti botnlagið að vera minnst 10 cm djúpt. Ýmis skordýr geta nýtt sér þennan sand, einkum þau sem grafa sig niður.
Magn: 5kg
Kornastærð: 0,2-1mm
Aðrar upplýsingar
| Þyngd | 0.00 kg |
|---|





