13.790 kr.

SKU: 09595 Flokkur:

Afríkusnákhöfðinn (Parachanna obscura) er fallegur állaga fiskur frá Vestur og Mið-Afríku. Þetta er ránfiskur og getur aðeins verið með mjög kröftugum fiskum sem eru meira en 2/3 af lengd hans. Étur allt m.a.s. ugga af pleggum og alla snigla. Þolir vel lága súrefnismettun vatns en verður að komast upp á yfirborðið til að anda. Best að hafa góða felustaði og vel lokað búr. Annars verður fiskurinn kominn út á gólf og langa leið um íbuðina. Sýrustig pH 6-7,5 og hiti 22-28°C. Best að mata á lifandi fóðri. Verður um 35 cm langur en oft smærri í búrum. Hann er afar snar í snúningum. Hrygnan er stærri og feitari en hængurinn. Besta og eina leiðin til að fá par er að útvega 8 ungfiska og ala þá upp. Um leið og par myndast eru hinir 6 drepnir af parinu. Villtir!
Tegund:
African/Obscure Snakehead L - Wild.
Stærð: 10-15 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg