Odorrana livida L
Græni fjallafroskurinn (Odorrana (Rana) livida) er nokkuð algengur og snotur froskur sem finnst aðeins á Dawna-hryggnum í Mýanmar. Þetta er miðlungsstór fitfroskur með breytilegt litarhaft en yfirleitt græn á baki. Snoppan er oddhvöss. Froskurinn vill vera í röku umhverfi (60-70% raki) með aðgang að hreinu vatni og jafnvel helst sundvatni. Botnlag má vera mold, gróf en slétt möl, börkur eða mosi. Vill hafa felustaði ss. steina eða viðarbúta og greinar til hoppa upp í. Lifa upp undir 6 ár og geta náð 8 km/klst stökkhraða. Nærast aðallega á kribbum en einnig mjölormum, möðkum og öðrum skordýrum. Kvendýrið er stærra (8,8-9,7 cm) en karldýrið (5 cm).
Tegund: Green Mountain/Cascade Frog L
Stærð: 5 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 8 vikur (eftir framboði hverju sinni)
Aðrar upplýsingar
Þyngd | 0.00 kg |
---|