One-Stripe Spiny Eel M/L – Wild

4.590 kr.

SKU: 23514 Flokkur:

Rákaállinn (Macrognathus aral) er falleg álategund frá SA-Asíu. Þetta er ekki eiginlegur áll heldur ílangur fiskur með langsum rák. Hann er einfari sem liðast um búrbotninn í ætisleit, einkum á nóttunni. Hann hentar eingöngu með stærri fiskum en þó ekki grimmum. Hann er almennt rólegur en þolir illa aðra fiska af sömu ætt. Stærðar síns vegna getur hann ekki verið með fiskum sem hann getur gleypt. Hann er afar snar í snúningum og eigandinn þarf því að gæta þess að hafa búrið vel lokað. Nærist á möðkum og kjötmeti og þarf sendinn botn til að fela sig í. Verður allt að 60 cm langur. Villtir!
Tegund: Striped/Striped Peacock/One-Stripe Spiny Eel M/L - Wild
Stærð: 15-18 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Macrognathus aral - Aqualog.de

 

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg