Optimum All Purpose Flakes 90g

3.290 kr.

SKU: OPTIMUM-90/NLS-18019 Flokkar: , ,

Byltingakennt fóður frá New Life Spectrum. Einfaldlega vandaðasta og besta fiskafóðrið í heiminum! Aðeins er notast við hágæðahráefni á borð við krill-átu og síld, frekar en hefðbundið fiskimjöl eins og flestir aðrir framleiðendur, til að tryggja hámarksnæringu og hreysti. Hvort sem um er að ræða samfélagsbúr eða sérhæft siklíðubúr uppfyllir New Life Spectrum þarfir allra fiska - kjötæta, grænmetisæta og alæta. Fjórir náttúrulegir litaukar í fóðrinu, m.a. spirúlína þörungur, tryggja að fiskurinn skarti fegurstu liti og viðbættar fiskiolíur og hvítlaukur tryggja bestu heilsu og sjúkdómsviðnám. Engin hormón eru notuð í fóðrinu. Reyndu og þú sérð mun innan tíu daga!!

Optimum All Purpose Flakes er fyrir minni búrfiska. (Stærri búrfiskar geta étið fóðurkögglana.) Það hefur hátt próteinhlutfall að viðbættum hvítlauk og allt fyrir heilbrigða og sterka smáfiska. Þótt margir fiskar séu grænmetis- og þörungaætur þá éta þeir einnig mikið af vatnalífverum til að fá nauðsynleg prótein. Búrlíf tryggir yfirleitt ekki nægt framboð af þörungum til að mæta þessari þörf en samsetning New Life Spectrum Optimum All Purpose Flakes gerir það hins vegar og svo um munar!

Stærð og lögun: fljótandi flögur.
Magn: 90 g.

Innihald: heilfiskur, kornmeti, chlorella grænþörungar, ulva þang, hvítlaukur (5%), spirúlína, ómega-3 fitusýrur, ávextir, grænmeti.  
Samsetning (1 kg): Hráprótín 49%, hráfita 8%, hrátrefjar 4%, aska 10%, raki 9%, betakarótín 16.500 IU, A-vítamín 8000 IU, D-vítamín 2500 IU, E-vítamín 200 IU, D-pantótensýra 9,7 IU, níacín 19,8 mg, fólínsýra 0,7 mg, B1-vítamín (þíamín) 4,2 mg, ríbóflavín 2,7 mg, B6-vítamín (pýrídoxín) 4 mg, bíótín 0,1 mg, E-vítamín, C-vítamín (askorbínsýra) 30 mg, kólín 50 mg, etýlen-díamín tvívetnisjoðíð 50 mg, litarefni 420 mg, önnur snefilefni 75 mg.

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg