Orange-winged Amazon (Lovísa) – SELD

195.000 kr.

Óransvængjaði amasoninn (Amazona amazonica amazonica) er vinsæll félagi, enda litfagur og greindur stórfugl. Hann hefur
nokkra talgetu og auðvelt er að kenna honum kúnstir. Þetta er
félagslyndur og lífsglaður fugl sem hefur mikla leikþörf. Frekar hávær, einkum kvölds og morgna. Þarf nóg til að
dunda sig við ss. leikföng og nagdót. Rykar litið og þarf góða næringu
þ.e. gott úrval fræja, pálmahnetur, eggjafóður og mikið af grænmeti og ávöxtum. Pantanir í síma 699 3344. Nánari
upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/orange-winged_amazon.html

Hún Lovísa er 10ra ára gamall kvenfugl, taminn af Guðrúnu Petersen, flutt inn frá Bretlandi. Henni fylgir stórt notað gyllt búr á standi (stærra en á myndinni og á hjólum). Lovísa er róleg og dagfarsprúð og hægt að klappa henni og kjassa við hana ef rétt er farið að. Hún bitur yfirleitt ekki en er frekar þybbin af amasóna að vera og er komin í megrun! Hún hefur verið kyngreind og skjal fylgir með.
Stærð: 31 cm.
Lífaldur: 50-70 ár.
Verð: 195.000 kr ásamt búri - SELD!

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg