Paradise Fish – Blue Fin Red Flame M/L

6.190 kr.

SKU: 23864 Flokkur:

Eldrauði paradísarfiskurinn (Macropodus opercularis 'Blue Fin Red Flame') er laglegur labýrintufiskur frá A-Asíu. Hængurinn er litfagurri og sífellt að gera sig til við hrygnuna og býr til flothreiður til að hrygna í. Hann getur verið nokkuð aðgangsharður við hrygnuna og stundum gengið af henni dauðri. Hentar best stakur eða í pari eða með nokkrum hrygnum. Má ekki vera heldur vera með slæðufiskum eða nörturum þ.e. fiskum sem gætu bitið í ugga og sporða. Getur gengið í samfélagsbúri með rólegum fiskum. Verður um 10 cm langur.
Tegund: Blue Fin Red Flame Paradise Fish M/L
Stærð: 5-6 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg