ParaGuard 100ml

2.190 kr.

Ekki til á lager

SKU: 6060509 Flokkur:

ParaGuard byggir á einstakri díaldehýð meðferð, ásamt malakít grænu og fjölliðum, sem drepur fjölmörg útvortissníkjudýr (ectoparasites) á fiskum (ss. hvítblettaveiki) og útvortis sveppa-, bakteríu- og veirusýkingar (ss. sporðátu). Þetta er eitt breiðvirkasta lyfið á markaðnum. ParaGuard inniheldur ekkert formaldehýð eða metanól eins og sum varasöm formalínlyf og hefur ekki áhrif á sýrustígið (pH). Það er eina fljótandi lyfið sem ræður við sníkjudýr, bakteríur, sveppi og veirusýkingar. ParaGuard hentar sérlega vel í sjúkrabúr, í ný búr eða búr sem nýjum fiskum er bætt út í. Það skemmir ekki lífrænar síur og er sértaklega heppilegt til að dýfa fiskum í. ParaGuard er skilvirkt og drjúgt í meðferð ytri sníkjudýra og smitsára. 100ml flaska dugir í 8.000L vatns. Virkar í bæði ferskvatnsbúr og sjávarbúr. ATH. getur farið illa í suma linkóralla (seníur) og sæfífla í sjávarbúrum.

Notkunarleiðbeiningar: í búr: setjið 5ml í hverja 40L vatns. Endurtakið daglega meðan að fiskarnir sýna engin streitumerki, uns einkennin hverfa. Gætið þess að hella ekki lyfinu óþynntu á fiskana. Í bað (dip): dýfið fisknum í fötu með 3ml af lyfinu fyrir hverja 4L vatns í 1 klst. Fiskurinn má vera lengur í blöndunni ef hann sýnir engin streitueinkenni. Ef lyfið berst í augu skal skola þau strax vel og leita læknis.

 
Parasitic
 Fungal
 Bacterial
  Viral
AquaZole
 
 
Cupramine
   
Focus 
 
KanaPlex 
 
MetroPlex
 
 
NeoPlex 
 
ParaGuard
PolyGuard
 
SulfaPlex

Magn: 100ml.
Afgreiðslutími: til á lager!

Sjúkdómaforvarnir! 

Sjúkdómameðhöndlun!

 

 

Aðrar upplýsingar

Þyngd100.00 kg