Peach-face/Fischer Lovebird Hybrid (Ríó) – SELDUR!

16.000 kr.

Róshöfðinn (Agapornis rosiecollis) nýtur mikilla vinsælda, enda litríkur og leikglaður smáfugl. Hann hefur litla talgetu en bætir það upp með þrautseigju og útsjónarsemi. Þetta er góður "útbrotsfugl" þ.a. mikilvægt er að loka búrinu vel. Ástargaukurinn er mjög félagslyndur og kelinn en líka afar ákveðinn og hentar því ekki yngri börnum. Nokkuð hljóður en getur gefið frá sér hvell hljóð sem geta farið í taugarnar á viðkvæmum. Þarf nóg til að dunda sig við ss. leikföng og nagdót. Rykar litið og þarf góða næringu þ.e. fjölbreytt úrval fræja, eggjafóður og auðvitað grænmeti og ávexti. Fæst í ýmsum litarafbrigðum. Pantanir í síma 699 3344. Nánari upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/peach-faced_lovebird.html

Ríó er fæddur 12. mars 2012 og er trúlegast kvenkyns. Hún er uppátækjasöm, en eins og ættarinnar er siður, allfrek og vill verja búrið sitt eins og góðri kvensu sæmir. Hún er ljúf við þá sem henni þykir vænst um - aðallega konur en ekki börn. Henni fylgir búr með einhverju dóti í. Hefur verið á Harrison's þurrfóðri.

Stærð: 16 cm.
Lífaldur: 15-30 ár.
Framboð: rúmlega ársgamall fugl með búri.

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg