Peach-faced Lovebird (Snotra og Snúður) – SELD

36.000 kr.

óshöfðinn (Agapornis rosiecollis) nýtur mikilla vinsælda, enda litríkur og leikglaður smáfugl. Hann hefur litla talgetu en bætir það upp með þrautseigju og útsjónarsemi. Þetta er góður "útbrotsfugl" þ.a. mikilvægt er að loka búrinu vel. Ástargaukurinn er mjög félagslyndur og kelinn en líka afar ákveðinn og hentar því ekki yngri börnum. Nokkuð hljóður en getur gefið frá sér hvell hljóð sem geta farið í taugarnar á viðkvæmum. Þarf nóg til að dunda sig við ss. leikföng og nagdót. Rykar litið og þarf góða næringu þ.e. fjölbreytt úrval fræja, eggjafóður og auðvitað grænmeti og ávexti. Fæst í ýmsum litarafbrigðum. Pantanir í síma 699 3344. Nánari upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/peach-faced_lovebird.html

Hjónin Snotra og Snúður eru vel taminn og um 2ja ára gömul. Snotra er lútína en Snúður hefðbundinn róshöfði (sjá myndir). Þeim fylgir gott Sofia Imac búr án stands (sjá mynd) ásamt svefntjaldi og nýjum varpkassa sem þau eru farin að nota. Þau eru bæði lúsgæf og kelin og seljast eingöngu saman.
Stærð: 16 cm.
Lífaldur: 15-30 ár.
Framboð: Vel tamið par ásamt búr - SELD!
Verð: 36.000 kr.

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg