Phyllobates terribilis ‘Yellow’ M

19.790 kr.

SKU: ANAPH1301M Flokkur:

Gyllti pílufroskurinn (Phyllobates terribilis 'Yellow') er bráðfallegur eiturörvafroskur frá Kolombíu. Eftirsóttur vegna litarins - gulllitaður. Karldýr geta slegist um tímgunarsvæði. Kvendýrið einokar karldýr og parar sig og kemur hrognunum fyrir í bleytu á jörðinni. Karlinn flytur síðan halakörturnar í bakslími í vatnspoll hátt í trjánum þar sem þær stækka. Halakörturnar nærast á pöddulífi í pollunum og hverja aðra ef ekkert æti er til staðar. Froskurinn nærist á skordýrum ss. maurum, krybbum, ávaxtaflugum og möðkum. Þurfa að vera í röku búri með mosa og plöntum og aðgengi að hreinu vatni. Þetta eru næturdýr eins og aðrir froskar. Karldýrið verður 5 cm langt en kvendýrið aðeins stærra. Nokkur litarafbrigði eru til af Phyllobates terribilis froskategundunni. Má ekki vera í of heitu umhverfi - helst á bilinu 20-26°C. Þessir eru ræktaðir og því ekki eitraðir eins og í náttúrunni. En í náttúrinnu eru þeir með þeim eitruðustu. Geta verið margir saman í búri en vilja gott pláss til að hreyfa sig og þurfa hátt rakastig.

Tegund: Golden Arrow Dart/Golden Poison Frog M
Stærð: 3 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 8 vikur (eftir framboði hverju sinni og háð CITIES leyfi)

File:Phyllobates-terribilis-Zoo-Zuerich.jpg - Wikimedia Commons

Umönnunarleiðbeiningar.

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg