8.790 kr.

SKU: ANAPH1101M Flokkur:

Rauðrákapílufroskurinn (Phyllobates vittatus) er fallegur og nokkuð algengur eiturörvafroskur frá Golfo Dulce svæðinu í Kostaríka. Hann er skyldur froskum af Dendrobates ættinni. Eftirsóttur vegna litarins - flekkóttur með tvær skærar appelsínugular rákir eftir bakinu og grágræna flekkótta leggi.  Kvendýrið einokar karldýr, slást innbyrðis um hann. Kvendýrið hrygnar í litlum polli og karldýrið frjóvgar eggin. Um 5-10 afkvæmi fæðast og karldýrið gætir þeirra. Halakörturnar nærast á pöddulífi í pollunum og hverja aðra ef ekkert æti er til staðar. Froskurinn nærist á skordýrum ss. maurum, krybbum, ávaxtaflugum og möðkum. Þurfa að vera í röku búri með mosa og plöntum og aðgengi að hreinu vatni. Þetta eru næturdýr eins og aðrir froskar. Karldýrið verður 2,6cm langt en kvendýrið aðeins stærra (3,1cm). Lifa upp undir 10 ár í búrum. Ræktaðir í EU.

Tegund: Golfodulcean Poison Frog M
Stærð: 1,5-2 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 8 vikur (eftir framboði hverju sinni og háð CITIES leyfi)

Phyllobates vittatus | Phyllobates vittatus in terrarium. | Frode | Flickr

Umönnunarleiðbeiningar.

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg