Phyto-Feast™ 500ml
Phyto-Feast™ svifþörungaþykknið er framleitt af Reed Mariculture sem eru fremstir á sviði smáþörungaræktunar í heiminum. Afurðir þeirra eru notaðar í meira en 500 klakstöðvum í yfir 70 löndum um heim allan.
Phyto-Feast™ er svifþörungaþykkni þar sem svifinu er bókstaflega haldið "sofandi" án þess að vera fryst. Það þýðir að melting og öndun svifsins er í algeru lágmarki, án þess að næringargildi þess raskist. Þykknið endist því í nokkra mánuði í kæli án þess að spillast. Lifandi svifþörungar í flöskum endast skemur nema þær séu geymdar í næringarlausn. Þær ganga á eigið prótein og fitu í myrkri og glata þar með næringargildi sínu, öfugt við Phyto-Feast™ svifþörungaþykknið.
Í Phyto-Feast™ eru Isochrysis, Tetraselmis, Amphora,
Pavlova, Synechococcus og Nannochloropsis þörungar. Það er samdóma álit sérfræðinga um heim allan að þessa þörunga þurfi í heilsteyptu svifþörungafóðri. Engir þeirra nægja einir og sér, en saman tryggja þeir réttu samsetninguna. Brúnþörungar skipta sérlega miklu máli fyrir svifætur því að þeir einir innihalda DHA fitusýruna sem þarf til að ómega-3 fitusýran skili sér að fullu. Phyto-Feast™ er EINA lifandi svifþörungaþykknið sem inniheldur 100% af næringunni sem lífverur þurfa - prótein, kolvetni, vítamín og nauðsynlegar fitusýrur.
Hér má sjá næringarþörf algengra kóralla og hryggleysingja:
Lífverugerð Phyto-Feast™ Lifandi dýrasvif
Linkórallar | ~80% fæðunnar | ~20% fæðunnar
|
Harðkórallar | ~20% fæðunnar | ~80% fæðunnar
|
Tridacnid clams | Ungviði ~80% fæðunnar | Ungviði ??? |
Svampar | JÁ | JÁ |
Möttuldýr (Ascidians) | JÁ | ??? |
Hjóldýr (Rotifers) | JÁ | |
Copepods | JÁ | |
Hreinsirækjur | Ungviði - JÁ | JÁ |
Blævængsormar | JÁ | JÁ |
Það er staðreynd að allar sjávarlífverur taka næringar- og vaxtarkipp við reglulega gjöf Phyto-Feast™. Holsepar lin- og harðkóralla opnast upp á gátt, Tridacnid clams eða samlokuskeldýr lifna við, blævængsormar byrja á svifveiðar og meira segja bertálknar (Nudibranch lindýr) æða allt i einu um búrið!
Magn: 500 ml
Geymist best í kæli við 3-4°C.
Aðrar upplýsingar
Þyngd | 0.00 kg |
---|