13.190 kr.

SKU: ANATA1502M Flokkur:

Borneó trjáfroskurinn (Polypedates otilophus) er merkilegur trjáfroskur frá SA-Asíu. Hann finnst gjarnan við hrísgrjónakra og er trjáfroskur. Hausinn er þríhyrningslaga. Þetta er auðveldur byrjendafroskur sem þarf hátt búr með góðum klifurgreinum, aðgang að vatni (helst rennandi fossi) og nægt æti. Hann hefur mikla matarlyst og étur mestmegnis skordýr ss. engisprettur, flugur og maðka. Getur fjölgað sér í búrum og hrygnir í froðuhreiðri frekur en í vatnspolli og er það sérkenni þessarar tegundar. Best er að hafa eitt karldýr á mót 3 kvendýrum ef ætlunin er að láta þá tímgast. Gott er að hafa hitamottu undir búrinu og UV-ljós yfir því. Best að hafa lifandi plöntur í burinu til að klifra í. Botnlag má vera rakur barkarspænir með kolum (lykteyðandi) og sphagnum mosa yfir. Úða þarf burið reglulega til að viðhalda rakanum. Karldýrið verður 6-8 cm langt en kvendýrið 8-10 cm. Lifir upp undir 10 ár.

Tegund: File-eared/Borneo Eared Tree Frog M
Stærð: 5 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 8 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Polypedates otilophus - Wikiwand

Umönnunarleiðbeiningar

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg