Pool Frog SM
Pollafroskurinn (Pelophylax (Rana) lessonae) er nokkuð algengur og snotur froskur sem finnst víða í Evrópu. Þetta er miðlungsstór fitfroskur með breytilegt litarhaft en yfirleitt grænbrúnn með doppum og ljósa rák sitt hvoru megin eftir endilöngu bakinu. Snoppan er oddhvöss. Froskurinn vill vera í röku umhverfi (60-70% raki) með aðgang að hreinu vatni og jafnvel helst sundvatni. Botnlag má vera mold, gróf en slétt möl, börkur eða mosi. Vill hafa felustaði ss. steina eða viðarbúta og greinar til hoppa upp í. Lifa upp undir 6 ár og geta náð 8 km/klst stökkhraða. Nærast aðallega á kribbum en einnig mjölormum, möðkum og öðrum skordýrum. Taka einnig vandað þurrfóður ss. JurassiDiet Frog & Newt og fóðurtöflur. Kvendýrið er stærra en karldýrið - verða 5-9 cm löng. Ræktaðir!
Tegund: Pool Frog SM
Stærð: 2 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 2-4 vikur (eftir framboði hverju sinni)
Aðrar upplýsingar
| Þyngd | 0.00 kg |
|---|


