Pyxicephalus adspersus S
Afríski stórfroskurinn (Pyxicephalus adspersus) er algengur risafroskur sem finnst víða í Afríku. Mjög aðlögunargóður froskur sem virðist þola flest. Froskurinn vill vera í röku umhverfi (60-70% raki) með aðgang að hreinu vatni og jafnvel helst sundvatni. Botnlag má vera mold, gróf en slétt möl, börkur eða mosi. Vill hafa felustaði ss. steina eða viðarbúta og greinar til hoppa upp í. Lifa upp undir 6 ár og geta náð ágætum stökkhraða. Karldýrið er stærra (24,5 cm) en kvendýrið, öfugt við flestar aðrar froskategundir. Geta náð 1,4kg að þyngd og éta allt sem að kjafti kemur.
Tegund: African Pixie Frog S
Stærð: 5-7 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 8 vikur (eftir framboði hverju sinni)
Aðrar upplýsingar
Þyngd | 0.00 kg |
---|