Quiko Birdol 250ml

Sale!

2.933 kr.

Quiko Birdol heilsu- og baðvökvinn hefur um árabil verið ómissandi í forðabúri fuglaeigenda. Það hefur bjargað mörgum fuglinum. Inniheldur lífsnauðsynlegar olíur m.a. úr tröllatré (eucalyptus) og snefilefni sem efla ónæmiskerfi sjúkra og veikburðra fugla og smádýra, jafnvel í litlum skömmtum. Quiko Birdol má líka setja í baðvatn fugla eða úða því á þá til að bæta fjaðurhaminn. Hefur góð áhrif á lungu og slímhúð fugla. Skammtastærð: 5ml í 1L vatns daglega til drykkjar eða 10ml í 1L baðvatns eða í úðabrúsa. Hrærist fyrir notkun. Geymist á köldum stað. Ekki láta standa í sól.
Innihald: lífsnauðsynlegar olíur (eucalyptus, glýserol), snefilefni.
Samsetning: kopar 0,5g, natríum 7,29g, glýserol 14,42g, lífsnauðsynlegar olíur 4,17g, vatn.
Magn: 250 ml