Ranitomeya benedicta M
Helgi pílufroskurinn (Ranitomeya benedicta) er bráðfallegur eiturörvafroskur frá miðhluta Perú. Eftirsóttur vegna litarins - eldrauður haus, sæblár búkur með svörtum blettum. Kvendýrið einokar karldýr og parar sig og kemur hrognunum (3-8 í goti) fyrir í röku undirlagi á jörðinni. Karlinn flytur síðan halakörturnar, eina í einu, í vatnspoll þar sem þær stækka. Halakörturnar nærast á pöddulífi í pollunu og hverja aðra ef ekkert æti er til staðar. Froskurinn nærist á skordýrum ss. maurum, krybbum, ávaxtaflugum og möðkum. Þurfa að vera í röku búri með mosa og plöntum og aðgengi að hreinu vatni. Þetta eru næturdýr eins og aðrir froskar. Verða um 3 cm á stærð, kynin nokkurn vegin jafnstór.
Tegund: Blessed Poison Frog M
Stærð: 1,5-2 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 8 vikur (eftir framboði hverju sinni og háð CITIES leyfi)
Aðrar upplýsingar
Þyngd | 0.00 kg |
---|