35.740 kr.

SKU: ANARA1701L Flokkur:

Flavovittata pílufroskurinn (Ranitomeya flavovittata) er bráðfallegur en smár eiturörvafroskur frá Loreta vatnasvæðinu í Perú. Eftirsóttur vegna litarins - búkur svartur með skærgulum rákum, lappir gráleitar með brúnum skellum. Kvendýrið einokar karldýr og parar sig og kemur hrognunum (3-8 í goti) fyrir í röku undirlagi á jörðinni. Karlinn flytur síðan halakörturnar, eina í einu, í vatnspoll þar sem þær stækka. Halakörturnar nærast á pöddulífi í pollunu og hverja aðra ef ekkert æti er til staðar. Froskurinn nærist á skordýrum ss. maurum, krybbum, ávaxtaflugum og möðkum. Þurfa að vera í röku búri með mosa og plöntum og aðgengi að hreinu vatni. Þetta eru næturdýr eins og aðrir froskar. Verða um 1,7 cm á lengd, kynin nokkurn vegin jafnstór.

Tegund: Flavovittata Poison Frog L
Stærð: 1,5 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 8 vikur (eftir framboði hverju sinni og háð CITIES leyfi)

Ranitomeya flavovittata (Captive Bred) | Josh's Frogs

Umönnunarleiðbeiningar.

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg