Ranitomeya lamasi ‘Highland’ L
Pasco pílufroskurinn (Ranitomeya lamasi 'Highland') er bráðfallegur en smár eiturörvafroskur frá fjallendi Perú. Eftirsóttur vegna litarins - höfuð og bak gult með svörtum skellum, kviður og lappir blár með svörtum flekkjum. Kvendýrið einokar karldýr og parar sig og kemur hrognunum (3-8 í goti) fyrir í röku undirlagi á jörðinni. Karlinn flytur síðan halakörturnar, eina í einu, í vatnspoll þar sem þær stækka. Halakörturnar nærast á pöddulífi í pollunu og hverja aðra ef ekkert æti er til staðar. Froskurinn nærist á skordýrum ss. maurum, krybbum, ávaxtaflugum og möðkum. Þurfa að vera í röku búri með mosa og plöntum og aðgengi að hreinu vatni. Þetta eru næturdýr eins og aðrir froskar. Kvendýrið verður um 3,2 cm á lengd, karldýrið aðeins minna.
Tegund: Pasco Poison Frog 'Highland' L
Stærð: 2 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 8 vikur (eftir framboði hverju sinni og háð CITIES leyfi)
Aðrar upplýsingar
Þyngd | 0.00 kg |
---|