38.490 kr.

SKU: ANARA1801L Flokkur:

Rauðbaks pílufroskurinn (Ranitomeya reticulatus) er bráðfallegur en smár eiturörvafroskur frá A-Perú. Eftirsóttur vegna litarins - höfuð og bak rauðgult eða rautt með hrjúfri áferð, búkur grá/sæblár með svörtu marmaramunstri. Kvendýrið einokar karldýr og parar sig og kemur hrognunum (3-8 í goti) fyrir í röku undirlagi á jörðinni. Karlinn flytur síðan halakörturnar, eina í einu, í vatnspoll þar sem þær stækka. Halakörturnar nærast á pöddulífi í pollunu og hverja aðra ef ekkert æti er til staðar. Froskurinn nærist á skordýrum ss. maurum, krybbum, ávaxtaflugum og möðkum. Þurfa að vera í röku búri með mosa og plöntum og aðgengi að hreinu vatni. Þetta eru næturdýr eins og aðrir froskar. Verða um 1,6 cm á lengd, kynin nokkurn vegin jafnstór.

Tegund: Red-backed Poison Frog L
Stærð: 1,4 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 8 vikur (eftir framboði hverju sinni og háð CITIES leyfi)

AmphibiaWeb - Ranitomeya reticulata

Umönnunarleiðbeiningar.

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg