Ranitomeya variabilis ‘Southern’ M

36.840 kr.

SKU: ANARA1902M Flokkur:

Zimmerman pílufroskurinn (Ranitomeya variabilis 'Southern') er bráðfallegur eiturörvafroskur frá Huallaga vatnsvæðinu í miðhluta Perú. Eftirsóttur vegna litarins - gulgrænn búkur með svörtum blettum og grábláa flekkótta útlimi. Kvendýrið einokar karldýr og parar sig og kemur hrognunum (3-8 í goti) fyrir í röku undirlagi á jörðinni. Karlinn flytur síðan halakörturnar, eina í einu, í vatnspoll þar sem þær stækka. Halakörturnar nærast á pöddulífi í pollunu og hverja aðra ef ekkert æti er til staðar. Froskurinn nærist á skordýrum ss. maurum, krybbum, ávaxtaflugum og möðkum. Þurfa að vera í röku búri með mosa og plöntum og aðgengi að hreinu vatni. Þetta eru næturdýr eins og aðrir froskar. Verða um 3 cm á stærð, kynin nokkurn veginn jafnstór. Geta lifað allt að 10 árum í búrum.

Tegund: Zimmerman's/Variable Poison Frog 'Southern' M
Stærð: 2 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 8 vikur (eftir framboði hverju sinni og háð CITIES leyfi)

Ranitomeya variabilis "Southern" - Zimmerman's Poison Frog… | Flickr

Umönnunarleiðbeiningar.

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg