Red-finned Blue Loach M (min. 5 pcs)
Rauðugga bótían (Yasuhikotakia modesta) er falleg og ákveðin sniglaæta frá Taílandi. Hún verður allt að því 20 cm löng og getur lifað alllengi. Hún er nokkuð frek að eðlisfari, sérstaklega við aðra botnfiska og bótíur. Hængurinn er spengilegri en hrygnan og bæði eru með beinnibbur undir augun sem þau geta sprett út til varnar. Þess vegna er ekki hyggilegt að halda á þeim með berum höndum! Þarf góða felustaði til að troða sér í. Geta verið stakir en plumma sig best í pörum með stærri fiskum. Aðalfæðan eru sniglar og fóðurtöflur. Má einnig gefa grænmeti ss. gúrkur. Þola illa lyfjagjöf af því að þær eru hreisturslausar og best að nota saltmeðferðina ef sjúkdómar koma upp.
Tegund: Red-tailed/Red-finned Loach M
Stærð: 4,5-6 cm
Lágmarkspöntun: 5 stk.
Einingarverð: 2.310 kr
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)
Aðrar upplýsingar
| Þyngd | 0.00 kg |
|---|




