3.690 kr.

Rauði regnboginn (Glossolepis incisus) er afar skrautlegur regnbogafiskur frá Indónesíu. Þetta er fenjamýrarfiskur sem getur orðið býsna laglegur á fengitímanum. Hængurinn er litmeiri og með lengri ugga en hrygnan. Þetta er hópfiskur sem hrygnir auðveldlega í heimabúrum og dafnar best með gróðri. Fallegt gróðurbúr með 20 regnbogafiskum er ægifögur sjón. Þessum lyndir vel við aðra rólega fiska og er auðveldur byrjunarfiskur. Hængurinn verður 12 cm en hrygnan 10 cm. Kemur úr mjög alkalísku vatni pH 9-9,5. Þetta er hoppari þ.a. búrið þarf að vera vel lokað.
Tegund: Red Rainbowfish L
Stærð: 6-7cm
Afgreiðslutími: sérpöntunaravara - 4 vikur (eftir framboði)

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg