8.190 kr.

SKU: 5392 Flokkur:

Í bókinni Reef Life - Natural History and Behaviors of Marine Fishes and Invertebrates er farið yfir allt frá hinu stórfurðulega (t.d. pínulitlu fiskana sem búa í endaþarmsopum sæbjúganna) til hins ótrúlega fallega (t.d. sjaldgæfir kórallar sem búa yfir síbreytilegu litamynstri). Þau dýr sem hafa aðsetur sitt á kóralrifi vekja ósjaldan barnslega aðdáum þeirra sem eru svo heppnir að fá að sjá þau í sínu náttúrulega umhverfi. Bókin er byggð á áratuga vinnu í návígi við þessi dýr og sýnir ótrúlegar litaljósmyndir af þeim. Reef Life er ógleymanlega falleg bók sem útskýrir líffræði margra sjávarfiska og annarra sem búa í og í grennd við kóralrifin. Meðal tæknilegra ráðgjafa sem unnu við bókina eru sjávarlíffræðingar, fiskifræðingar, dýrafræðingar og sérfræðingar í kóralrifjum.
Bls: 224. Bókin er á ensku í hörðu bandi.

Efnisskrá:

  • Foreword: Look Closer
  • Prologue: Reef Exploration
  • Chapter 1: Reef Origins
  • Chapter 2: Reef Dwellers
  • Chapter 3: Near-Reef Habitats
  • Chapter 4: Living Together
  • Chapter 5: Feeding Time
  • Chapter 6: Protection & Defense
  • Chapter 7: Masquerade
  • Chapter 8: Reproduction
  • Epilogue: Disappearing Reefs

 Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur.

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg