Reef Salt 20kg – 600L
Reef Salt er efnafræðilega traust saltblanda, sérhönnuð til að líkjast hinu náttúrulega umhverfi kóralla. Það hentar jafn vel fyrir kóralrifsbúr og þau sem í eru fiskar eingöngu. Efnið er þróað til að viðhalda sem bestri mettun á magnesíum, kalsíum og strontíum í saltvatni og réttu sýrustigi (basastigi) fyrir hefðbundið búraumhverfi. Reef Salt inniheldur öll nauðsynleg snefilefni og meiri og minni efni sem eru í náttúrulegum sjó. Ekki er um merkjanlegt magn eitraðra eða ónauðsynlegra efna eins og nítríts, fosfats, silíkata, arseniks eða kadmíum að ræða í Reef Salt. Líffræðilegir efnisþættir eins og vítamín og amínósýrur eru óstöðugir í ómettuðu salti þar sem magn þeirra minnkar hraðar en svo að því verði haldið við með venjubundnum vatnaskiptingum. Þess vegna er mælt með Reef Plus til að tryggja rétt magn þessara efna. Reef Salt blandan er einstaklega tær, gefur sýrustig 8,2-8,4, alkalín 4 meq/l og kalsíum 400-420mg/l (fer eftir saltmagni). 20kg af salti duga í 600l af vatni.
ATH: Saltið er eingöngu ætlað fiskabúrum, látið börn ekki koma nálægt efninu.
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 6 vikur (eftir framboði)
Samanburður á sjávarsalti
Sjávarsnefilefnalisti!
Aðrar upplýsingar
Þyngd | 20.00 kg |
---|