Reptiland® Cave Sand Dark Red 5kg
Reptiland® Cave Sand Dark Red er kjörið botnlag fyrir alls kyns eyðimerkurdýr. Þessi rauðleiti leirsandur skapar náttúrulegt umhverfi fyrir allar grafandi eðlur og froskdýr. Best er að hella sandinum rökum í búrið og leyfa honum að þorna áður en dýrið er sett í það. Með þessu móti harðnar sandurinn og gerir skepnunni kleift að grafa göng og helli í honum. Þess vegna ætti botnlagið að vera minnst 10 cm djúpt. Ýmis skordýr geta nýtt sér þennan sand, einkum þau sem grafa sig niður. Hitaleiðni sandsins er góð og auðvelt að koma hitaköplum fyrir í honum, og þægilegt að verpa í sandinn. Sandurinnn harðnar á rúmlega 20 klst.
Magn: 5kg
Kornastærð: 0,2-1mm
Aðrar upplýsingar
| Þyngd | 0.00 kg |
|---|







