Salamandra salamandra terrestris ‘Yellow’ M
Röndótta eldsalamandran (Salamandra salamandra terrestris) er mjög falleg landsalamandra sem finnst víða í fjalllendi umhverfis Miðjarðarhafinu. Hún er með einkennandi búkmynstri - þykkum svörtum og gulum eða appelsínugulum langsöm rákum. Hún er frekar auðveld og lyndir vel aðra af sömu tegund, nema kannski um fengitímann. Karldýrið er minna og oftar í sterkari litum með pung. Þessi tegund þolir illa hita og þarf helst að haldast í búrum þar sem hitinn er undir 20°C (stofuhita). Nærast á skordýrum ss. mjölormum, möðkum og flugum sem búið er að dusta með vítamínum eða kalki. Afkvæmin nærast á blóðormum, dafníu eða túbífexormum. Geta einnig lært að taka einnig fiskafóðurtöflur. Þurfa að vera á landi með aðgang að vatni. Botnlagið þarf ekki að vera djúpt en helst úr mold eða mosa og rotnandi laufi. Hrygna yfirleitt í rennandi vatni þar sem halakörtuafkvæmin vaxa. Verður um 20 cm löng og getur lifað um 12 ár. Verður kynþroska 3-4 ára. Má meðhöndla varlega en gefur frá sér eitur (er með eiturkirtla eftir endilöngum búknum). Rólyndisdýr sem kann best við sig í mosamiklu búri sem það getur stungið sér aðeins ofan í. Tvö litarafbrigði til - gult eða appelsínugult.
Tegund: Yellow Striped Fire Salamander M
Stærð: 12 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 8 vikur (eftir framboði hverju sinni)
Aðrar upplýsingar
Þyngd | 0.00 kg |
---|