Senegal Parrot (Bósi) – SELDUR!

65.000 kr.

Senegalpáfinn (Piocephalus senegalus) nýtur mikilla vinsælda, enda greindur og leikglaður miðfugl. Hann hefur nokkra talgetu og er lítill harðjaxl sem lætur engan valta yfir sig. Senegalinn er félagslyndur og kelinn en líka afar ákveðinn. Nokkuð hljóður en getur gefið frá sér hávært blístur sem getur farið í taugarnar á viðkvæmum. Þarf nóg til að dunda sig við ss. leikföng og nagdót. Rykar litið og þarf góða næringu þ.e. fjölbreytt úrval fræja, eggjafóður og auðvitað grænmeti og ávexti. Pantanir í síma 699 3344. Nánari upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/senegal_parrot.html

Hann Bósi er 9 ára gamall handmataður senegali, fluttur inn frá Bretlandi. Honum fylgir DNA kyngreiningarskjal og lítið plast ferðabúr. Bósi er voða góður og er meira fyrir karlmenn en konur. Hann leyfir öllum að klappa sér, er mjög hrifinn af börnum og þykir gott að lát klóra sér á höfði. Best þykir honum að kúra hjá ástvinum sínum. Hann þekkir nafnið sitt og er almennt hljóðlátur og það heyrist ekkert í honum nóttunni. Er snyrtur reglulega og er á Harrisons þurrfóðri.
Stærð: 23 cm.
Lífaldur: 30-40 ár.
Verð: 65.000 kr ásamt ferðabúri - SELDUR!

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg