Senegal Parrot (Fía)

50.000 kr.

Ekki til á lager

Senegalpáfinn (Piocephalus senegalus) nýtur mikilla vinsælda, enda greindur og leikglaður miðfugl. Hann hefur nokkra talgetu og er lítill harðjaxl sem lætur engan valta yfir sig. Senegalinn er félagslyndur og kelinn en líka afar ákveðinn. Nokkuð hljóður en getur gefið frá sér hávært blístur sem getur farið í taugarnar á viðkvæmum. Þarf nóg til að dunda sig við ss. leikföng og nagdót. Rykar litið og þarf góða næringu þ.e. fjölbreytt úrval fræja, eggjafóður og auðvitað grænmeti og ávexti. Pantanir í síma 699 3344. Nánari upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/senegal_parrot.html

Hún Fía er 4ra ára gamall hálftaminn senegali, fluttur inn frá Bretlandi. Henni fylgir gott gyllt Gabber búr á hjólum (sjá mynd). Fía er lítið tamin og ekki handmötuð en kemur á prik. Hún er að leita að væntanlegum maka. Hún er til sölu vegna tímaleysis eiganda.
Stærð: 23 cm.
Lífaldur: 30-40 ár.
Verð: 50.000 kr ásamt búri.

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg