5.590 kr.

SKU: 06463 Flokkur:

Áttbandabótían (Serpenticobitis octozona) er falleg sniglaæta frá Sekong vatnasvæðinu í Laos í SA-Asíu. Hún verður um 6 cm löng. Hún er fremur róleg að eðlisfari og hentar því aðeins með rólegum fiskum og botnfiskum. Hængurinn er spengilegri en hrygnan og bæði eru með beinnibbur undir augun sem þau geta sprett út til varnar. Þess vegna er ekki hyggilegt að halda á þeim með berum höndum! Þarf góða felustaði til að troða sér í, einkum sendinn botn. Geta verið stakir en plumma sig best í pörum. Aðalfæðan eru sniglar og fóðurtöflur. Má einnig gefa grænmeti ss. gúrkur. Þola illa lyfjagjöf af því að þær eru hreisturslausar og best að nota saltmeðferðina ef sjúkdómar koma upp.
Tegund: Serpent/Eight Banded Loach M
Stærð: 4-5 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg