1.890 kr.

SKU: 39743 Flokkur:

Súmó II bótían (Schistura cf. balteata) er fallegur botnfiskur frá Mýanmar. Þetta er friðsamur og vinalegur fiskur sem þarf góð vatnsgæði. Botninn ætti að vera sendinn og sandkornin fíngerð þar eð hún vill gjarnan stinga sér ofan í botnlagið. Verður um 10 cm löng. Hún er fremur róleg að eðlisfari og hentar því aðeins með rólegum fiskum og botnfiskum. Hængurinn er kinnameiri en hrygnan. Geta verið stakir en plumma sig best í hópum. Aðalfæðan eru sniglar og fóðurtöflur. Þola illa lyfjagjöf af því að þær eru hreisturslausar og best að nota saltmeðferðina ef sjúkdómar koma upp. Villtir!
Tegund: Sumo II Loach M - Wild.
Stærð: 3-4 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg