Thera A Regular Fish w/Extra Garlic 60g – UPPSELT!
Byltingakennt fóður frá New Life Spectrum. Einfaldlega vandaðasta og besta fiskafóðrið í heiminum! Aðeins er notast við hágæðahráefni á borð við krill-átu og síld, frekar en hefðbundið fiskimjöl eins og flestir aðrir framleiðendur, til að tryggja hámarksnæringu og hreysti. Hvort sem um er að ræða samfélagsbúr eða sérhæft siklíðubúr uppfyllir New Life Spectrum þarfir allra fiska - kjötæta, grænmetisæta og alæta. Fjórir náttúrulegir litaukar í fóðrinu, m.a. spirúlína þörungur, tryggja að fiskurinn skarti fegurstu liti og viðbættar fiskiolíur og hvítlaukur tryggja bestu heilsu og sjúkdómsviðnám. Engin hormón eru notuð í fóðrinu. Reyndu og þú sérð mun innan tíu daga!!
Thera A Formula with Extra Garlic er sérfóður fyrir alla miðlungsstóra búrfiska. Thera A er með viðbættum hvítlauk (sem inniheldur allicín) og hentar einkar vel þegar fiskur er undir álagi td. í sóttkví, eftir meðalagjöf og fyrir seiði fyrir og eftir að þau eru færð milli búra. Hvítlaukurinn styrkir ónæmiskerfið og ver fyrir ágangi sníkjudýra. Thera A er ekki lyf og því ætti að sinna meðalagjöf áfram.
Þótt margir fiskar séu grænmetis- og þörungaætur þá éta þeir einnig mikið af vatnalífverum til að fá nauðsynleg prótein. Búrlíf tryggir yfirleitt ekki nægt framboð af þörungum til að mæta þessari þörf en samsetning New Life Spectrum Thera A Formula gerir það hins vegar og svo um munar!
Stærð og lögun: 1 mm hægsökkvandi kögglar.
Magn: 60 g.
Innihald: Íshafsrækja (krill), síldarmjöl, hveiti, þörungamjöl, betakarótín, spirulína, hvítlaukur, grænmetis- og ávaxtaolíur, ginseng, A-vítamín, D3-vítamín, B12-vítamín, ribóflavín, níacín, fólínsýra, kalsíum pantóþenat, pýrídoxín hýdróklóríð, þíamín, bíótín, E-vítamín, C-vítamín, kólín klóríð, kóbalt súlfat, koparsúlfat, járnsúlfat, mangansúlfat.
Samsetning (1 kg): Hráprótín 38%, hráfita 7%, hrátrefjar 5%, aska 8%, raki 10%, A-vítamín 8000 IU, D-vítamín 2500 IU, E-vítamín 200 IU.
Aðrar upplýsingar
Þyngd | 0.00 kg |
---|