Tropica Premium Nutrition 300ml

3.190 kr.

SKU: 615 Flokkar: ,

Tropica Premium Nutrition er sérhæfð plöntunæring fyrir ferskvatnsbúr. Inniheldur járn, magnesíum og nauðsynleg örnæringarefni. Ekkert köfnunarefni eða fosfór. Hentar fyrir búr með fáar eða hægvaxta plöntur og marga fiska. Bætið Tropica Premium Nutrition vikulega í búrið eftir vatnsskipti. Brúsapumpan dælir 2 ml af næringu í einu. Mælt er með að setja 6 ml fyrir hverja 50L búrvatns vikulega. Best er þó að gefa í samræmi við næringaþörfina hverju sinni. Föl lauf benda til snefilefnaskorts, en einnig léleg vaxtarskilyrði. Regluleg skömmtun með Tropica Premium Nutrition getur fengið blöðin til að grænka á ný. Hafa ber þó í huga að þetta er plöntunæring en ekki lyf fyrir deyjandi gróður.

Mælt er með minnst 25% vatnsskiptum aðra hverja viku. Ef óæskilegur þörungur fer að vaxa í búrinu mælum við með meiri vatnskiptum (upp í 50% í einu) samhliða því að gróðursetja hraðvaxta jurtir á borð við Hygrophila, Vallisneria og Egeria.

Magn: 300ml
Afgreiðslutími: til á lager

Leiðbeiningamyndskeið: Tropica Plant Care - Premium Nutrition

Aðrar upplýsingar

Þyngd250.00 kg