Turbelle® Stream 6205 – 22.000l/h
Tunze® Turbelle® Stream 2 Electronic hágæðastraumdælurnar nýju og heimsþekktu skara fram úr öllum afldælum
á markaðinum. Flestar straumdælur spýta vatni í mjórri kröftugri bunu sem getur verið skaðleg fyrir viðkvæma kóralla en Turbelle® dælurnar beina vatninu í breiðri, mjúkri bunu sem ýtir miklum vatnsmassa áfram án þess að ofreyna kórallaholsepa.Turbelle® dælurnar fást bæði með stillanlegri (breytilegri) dælingu og föstum dæluhraða. Þær henta ekki sem filterdælur.
Hin nýja straumlínulagaða Turbelle® Stream 2 Electronic 6205 dælan leysir Turbelle® Stream 6201 af hólmi. Hún er með stillanlegum dæluhraða, er jarðtengd og með hitavörn. Þessi knáa dæla er sérlega sparneytin og hljóðlát. Nýjungar eru þær að rótorpinninn er úr titanblöndu. Dælan er öll minni og nettari en áður og það fylgir kröftugur festisegull með. Þær eru auk þess rafstýrðar og því með breytilegum dæluhraða sem gerir kleift að líkja eftir ölduhreyfingum sjávar. Dælan leitast við að velja sparneytnustu leiðina og notar að jafnaði 50% minni orku en
sambærilegar dælur. Dælan er með inntaksvörn og fiskavörn þ.a. ef inntakið stíflast snýst rótorinn einn hring á 20 sekúndna fresti. Þegar aðskotahlutinn hefur verið fjarlægður fer dælan sjálfkrafa í gang eftir 20 sekúndur. Dælan er með inntaksvörn og fiskavörn þ.a. ef inntak stíflast snýst rótorinn einn hring á 20 sekúndna fresti. Þegar aðskotahluturinn hefur verið fjarlægður fer dælan sjálfkrafa í gang eftir 20 sekúndur. Dælurnar er jafnframt hægt er að tengja við rafhlöður (hefðbundnar eða sólar 10-24V) svo að þær stöðvist ekki þótt rafmagnið fari af. Tengisnúran kallast Safety Connector 6105 og þarf að panta sér. Dælunar þarf að tengja við gangstilli (Singlecontroller 7091) eða fleiri dælur saman á fjölstilli (Multicontroller 7095) sem keyptur er sér.
Háþróuð skrúfutækni.
Rótorpinni úr títanblöndu.
Með segulfestu fyrir <19mm gler
Öryggis lágspenna og stífluvari.
Gangstillir líkir eftir öldugangi sjávar (seldur sér).
Turbelle® Stream Electronic 2 6205.000
• Búrstærð: 800-3000L
• Stillanlegur dæluhraði: 5.000-22.000 l/klst
• Afl: <48W
• Glerþykkt seguls: <25mm
• Snúrulengd: 5 m
• Þvermál: 90 mm
• Úrtaksþvermál: 63 mm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur
Aðrar upplýsingar
Þyngd | 0.00 kg |
---|