5.990 kr.

SKU: 41573 Flokkur:

Guli marmaragraninn (Synodontis schoutedeni) er mjög fallegur hrygggrani frá vatnasvæði Congo í V-Afríku. Þetta er sýnilegur og dugmikill þrifill. Hann þekkist á fallega búkmynstrinu. Hann er almennt rólegur og þolinn gagnvart öðrum að sama kyni. Bestur samt með rólegum fiskum þar sem hann fær að vera í friði. Hann er snar í snúningum og getur gleypt smærri fiska og seiði. Nærist á möðkum og kjötmeti og þarf sendinn botn til að róta í. Verður um 13 cm langur. Villtir!
Tegund: Yellow Marbled/Vermiculated Synodontis M - Wild.
Stærð: 6-8 cm

Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)
Synodontis schoutedeni

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg