3.690 kr.

SKU: 24444 Flokkur:

Ástralíuregnboginn (Melanotaenia australis) er skrautlegur regnbogafiskur úr Murray-fljóti í SA-Ástralíu. Þetta er fenjamýrarfiskur sem getur orðið býsna laglegur á fengitímanum. Hængurinn er með rauðleitan sporð og litmeiri og með lengri ugga en hrygnan. Þetta er hópfiskur sem hrygnir auðveldlega í heimabúrum og dafnar best með gróðri. Fallegt gróðurbúr með 20 regnbogafiskum er ægifögur sjón. Þessum lyndir vel við aðra rólega fiska og er auðveldur byrjunarfiskur. Hængurinn verður 10 cm en hrygnan styttri. Kemur úr alkalísku vatni pH 7-8. Þetta er hoppari þ.a. búrið þarf að vera vel lokað.
Tegund: Australian/Western/Murray Rainbowfish M/L
Stærð: 5-6 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg