Entice 250ml
Entice™ er náttúrulegt bragð- og lystaukandi efni fyrir matvanda fersk- og saltvatnsfiska. Það er áskorun að eiga sumar lífverutegundir vegna þess hve erfitt getur reynst að fóðra þær. Entice™ er sérstaklega ætlað að vekja lyst hjá erfiðum og matvöndum fiskum. Efnið má nota í bæði sjávarbúr og ferskvatnsbúr.
Magn: 250ml
Notkunarleiðbeiningar: bleytið fæðunni stuttlega í Entice™ áður en dýrin eru fóðruð eða setjið 1-2 tappa af vökvanum út í búrið á þeim stað sem fæðan er sett. Hristist vel fyrir notkun. Það er engin hætta á ofskömmtun þ.a. notið eins ríflega eða sparlega og kosið er. 250ml duga í 50 gjafir.
Aðrar upplýsingar
Þyngd | 0.00 kg |
---|