9.890 kr.

SKU: 24815 Flokkur:

Pokarottunálin (Microphis lineatus) er afar rólegur og einstaklega fagur nálfiskur sem finnst við vestanvert Atlantshaf frá New Jersey og suður til Brasilíu. Þetta er ferskvatnsnál og þarfnast ekki salts í búrvatninu. Hún dafnar best í hópum (minnst þrjár saman) og getur verið með rólegum smáfiskum sem éta ekki allt frá þeim. Gott að hafa vel af gróðri og rótum til að skapa ákjósanleg skilyrði fyrir hana, þ.e. sýrustig pH 6, mjúkt vatn og hiti 21°C. Nokkuð harðgerður og skrautmikill fiskur sem verður um 20 cm langur. Hængurinn er litmeiri og gengur með frjóvguð eggin (allt að 25 stk) í kviðpoka eins og frændi hans, sæhesturinn, gerir (sjá myndir). Þurfa helst að fá lifandi fóður ss. artemíu, svartar moskítólirfur. Síður að gefa frosið fóður en þær geta þó vanist á það. Helst að fóðra 2x á dag þar eð meltingarvegur nálfiska er mjög stuttur. Kviður hrygnunar verður einstaklega fagur á fengitíma. Meðgöngutími hængsins er 15 dagar og seiðin eru 15 mm löng þegar þeim er sleppt. Þau fara strax að nærast á frísyndandi artemíu. Villtir!
Tegund: Opossum Pipefish L - Wild
Stærð: 8 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg