Grow Fry Starter Formula 50g

1.890 kr.

Byltingakennt fóður frá New Life Spectrum. Einfaldlega vandaðasta og besta fiskafóðrið í heiminum! Aðeins er notast við hágæðahráefni á borð við krill-átu og síld, frekar en hefðbundið fiskimjöl eins og flestir aðrir framleiðendur, til að tryggja hámarksnæringu og hreysti. Hvort sem um er að ræða samfélagsbúr eða sérhæft siklíðubúr uppfyllir New Life Spectrum þarfir allra fiska - kjötæta, grænmetisæta og alæta. Fjórir náttúrulegir litaukar í fóðrinu, m.a. spirúlína þörungur, tryggja að fiskurinn skarti fegurstu liti og viðbættar fiskiolíur og hvítlaukur tryggja bestu heilsu og sjúkdómsviðnám. Engin hormón eru notuð í fóðrinu. Reyndu og þú sérð mun innan tíu daga!!

Grow Fry Starter Formula er fyrir minnstu seiði og alla vaxandi búrfiska. Það er með mjög hátt próteinhlutfall (50%) og ríkt af ómega-fitusýrum. Það hentar sérlega vel til að hámarka seiðavöxt, án aukaverkananna sem aðrar próteinríkar blöndur ss. laxafóður valda. Þótt margir fiskar séu grænmetis- og þörungaætur þá éta þeir einnig mikið af vatnalífverum til að fá nauðsynleg prótein. Búrlíf tryggir yfirleitt ekki nægt framboð af þörungum til að mæta þessari þörf en samsetning New Life Spectrum Grow Fry Starter Formula gerir það hins vegar og svo um munar.

Stærð og lögun: 0,2-0,3mm hægsökkvandi kögglar.
Magn: 50 g.

Innihald: Íshafsrækja (krill), hveiti, fiskimjöl, þörungamjöl, sojamjöl, fiskiolía, amínósýrur, betakarótín, spirulína, A-vítamín, D3-vítamín, B12-vítamín, ribóflavín, níacín, fólínsýra, kalsíum pantóþenat, pýrídoxín hýdróklóríð, þíamín, bíótín, E-vítamín, C-vítamín, kólín klóríð, kóbalt súlfat, koparsúlfat, járnsúlfat, mangansúlfat, rotvarnarefni. Heildarsteinefnamagn <2,5%. 
Samsetning (1 kg): Hráprótín 50%, hráfita 9%, hrátrefjar 5%, aska 9%, raki 10%, A-vítamín 8000 IU, D-vítamín 450 IU, E-vítamín 200 IU.

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg