Phyllobates aurotaenia ‘Green’ M
Kokoe pílufroskurinn (Phyllobates aurotaenia 'Green') er fallegur og nokkuð algengur eiturörvafroskur frá Kolombíu. Hann er skyldur froskum af Dendrobates ættinni. Eftirsóttur vegna litarins - flekkóttur með tvær skærar mintugrænar rákir eftir bakinu og hvítdoppótta leggi. Kvendýrið einokar karldýr, slást innbyrðis um hann. Kvendýrið hrygnar í litlum polli og karldýrið frjóvgar eggin. Um 5-10 afkvæmi fæðast og karldýrið gætir þeirra. Halakörturnar nærast á pöddulífi í pollunum og hverja aðra ef ekkert æti er til staðar. Froskurinn nærist á skordýrum ss. maurum, krybbum, ávaxtaflugum og möðkum. Þurfa að vera í röku búri með mosa og plöntum og aðgengi að hreinu vatni. Þetta eru næturdýr eins og aðrir froskar. Karldýrið verður 3 cm langt en kvendýrið aðeins stærra (3,2 cm). Lifa upp undir 10 ár í búrum. Ræktaðir í EU.
Tegund: Kokoe Poison Frog M
Stærð: 1,5-2 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 8 vikur (eftir framboði hverju sinni og háð CITIES leyfi)
Aðrar upplýsingar
Þyngd | 0.00 kg |
---|