Pseudocreobotra wahlbergi M
Broddblaðabeiðan (Pseudocreobotra wahlbergi) er smágerð bænabeiða sem líkist blómi í útliti. Finnst í skógum S- og A-Afríku. Hún er með áberandi augamerkingu á bakinu. Kvendýrið og karldýrið verða svipað stór 4-5 cm. Kvendýrið er breiðleitara. Best er að hafa hana í loftræstu en lokuðu búri með moldarbotnlagi og mosa og plöntum. Kjörhiti er 25-30°C. Raki 60%. Best er að hýsa beiðurnar stakar þar eð þær geta lagst hver á aðra og étið minni dýr td. karldýrin og ungviði. Nærast á húsaflugum, fiðrildum og ýmsum öðrum flugum. Má gefa smáar krybbur en ekki sem aðalfæða. Búrið þarf ekki að vera stórt. Geta bitið en það er einungis óþægilegt ekki ekki eitrað. Mislitmiklir og geta breytt aðeins um lit.
Tegund: Spiny Flower/Bull's Eye Mantis M
Stærð: 3 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 8 vikur (eftir framboði hverju sinni)
Aðrar upplýsingar
Þyngd | 0.00 kg |
---|