2.090 kr.

SKU: 00555 Flokkur:

Hesthöfða bótían (Acantopsis dialuzona) er sérstæð sniglaæta frá SA-Asíu sem þekkist á hestaandlitinu. Hún verður um 25 cm löng. Hún er nokkuð róleg að eðlisfari og hentar því aðeins með rólegum fiskum og botnfiskum. Hængurinn er spengilegri en hrygnan og bæði eru með beinnibbur undir augun sem þau geta sprett út til varnar. Þess vegna er ekki hyggilegt að halda á þeim með berum höndum! Þarf góða felustaði til að troða sér í, einkum sendinn botn. Geta verið stakir en plumma sig best í pörum. Aðalfæðan eru sniglar og fóðurtöflur. Má einnig gefa grænmeti ss. gúrkur. Þola illa lyfjagjöf af því að þær eru hreisturslausar og best að nota saltmeðferðina ef sjúkdómar koma upp. Það er mjög erfitt að veiða þessa bótíu þ.a. best er að koma henni fyrir í endanlegu búri. Villtar!
Tegund: Horse Face Loach L - Wild!
Stærð: 7-8 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg